Fara í efni

Bariton-horn

Barítónhorn er blásturshljóðfæri sem tilheyrir málmblástursfjölskyldunni. Barítónhorn eru til í mismunandi stærðum og hafa mismunandi nöfn í ólíkum löndum, s.s. tenórhorn, barítón, euphonium og jafnvel tenórtúba. Í talmáli er heitið þó oftar en ekki stytt í barítón. Til þess að fá tón úr hljóðfærinu þarf að blása og purra í munnstykkið og þá hljómar hin kröftugi en mjúki tónn barítónhornsins.

Barítónhorn gegnir veigamiklu hlutverki í ýmiskonar hljómsveitum, svo sem lúðrasveitum og brassböndum. Oft byrja ungir nemendur sem stefna á túbuleik á því að spila á barítónhorn á meðan þeir þjálfa upp lungun og stækka aðeins.

BARÍTÓNHORN

Algengast er að nemendur hefji barítónnám á aldrinum 8-10 ára. Tónlistarskólinn leigir út hljóðfæri til nemenda sinna fyrstu árin en yfirleitt er gert ráð fyrir að nemendur eignist eigið hljóðfæri þegar þeir eru komnir nokkuð áleiðis í námi sínu. Mikilvægt er að ráðfæra sig við kennara þegar kemur að hljóðfærakaupum.

Nám á barítónhorn skiptist í einkatíma og hljómsveitaræfingar með Blásarasveitum Tónlistarskólans á Akureyri, en að auki fá nemendur tækifæri til að spila í minni samspilshópum. Kennt er eftir aðalnámskrá tónlistarskóla og barítónnemendur byrja að sækja tónfræðitíma þegar kennarar telja það tímabært.

Námsleiðir í boði

Fornám (5-9 ára) Áfangabraut (5 ára+) Stúdentsbraut

Sóley Björk Einarsdóttir
Kennari, hljómsveitastjóri og fagstjóri
Málmblástur, Blásarasveit, Tónfræði

Sóley Björk Einarsdóttir er fagstjóri blásaradeildar Tónlistarskólans á Akureyri og kennir á ýmis málmblásturhljóðfæri. Þar að auki stjórnar hún A og C blásarasveitum við Tónlistarskólann.Sóley lauk framhaldsnámi í klassískum trompetleik frá Royal Conservatory of The Hague í Hollandi ásamt tveimur aukagráðum í kennslufræði og barokktrompetleik. Einnig er hún meðlimur Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og kammersveitinni Elju. Sóley byrjaði að kenna við Tónlistarskólann haustið 2018 og leggur mikinn metnað í að styrkja starf blásara á Akureyri. „Í kennslunni legg ég áherslu á að vekja áhuga nemenda, finna hvaða leiðir henta þeim svo þeir nái árangri og að gleðin sé ekki langt undan. Í námi sem ekki er skyldunám skiptir miklu máli að nemandanum líði vel og það sé gaman til þess að hann haldi áfram og nái árangri. Það er ótrúlega gaman og ómetanlegt að sjá nemendur blómstra í hljómsveitarstarfinu, bæði félagslega og á hljóðfærinu sínu“