Fara í efni

Básúna

Básúna er blásturshljóðfæri sem tilheyrir málmblástursfjölskyldunni. Básúnan hefur enga takka og er að því leyti frábrugðin hinum málmblásturshljóðfærunum. Tónhæðin breytist með hreyfingu sleðans ásamt varablæstrinum. Til þess að fá tón úr hljóðfærinu þarf að blása og purra í munnstykkið og þannig hljómar hinn djúpi og kröftugi tónn básúnunnar.

Til eru nokkrar gerðir básúna. Tenór-básúnan er algengust og er hún það hljóðfæri sem flestir byrja að læra á. Einnig eru til alt-og bassa-básúnur, sem eru aðallega notaðar í stærri hljómsveitum. Alt-básúnan er minni og tónarnir bjartari, en bassa-básúnan er stærri og eru tónar hennar afar djúpir.

Básúnan er ómissandi í allar tegundir hljómsveita; blárasveitir, sinfóníuhljómsveitir, og stórsveit og hefur hún mikla breidd í styrkleikasviði sínu.

Básúna

Algengast er að nemendur hefji básúnunám á aldrinum 8-10 ára. Tónlistarskólinn leigir út hljóðfæri til nemenda sinna fyrstu árin en yfirleitt er gert ráð fyrir að nemendur eignist eigið hljóðfæri þegar þeir eru komnir nokkuð áleiðis í námi sínu. Mikilvægt er að ráðfæra sig við kennara þegar kemur að hljóðfærakaupum.

Nám á básúnu skiptist í einkatíma og hljómsveitaræfingar með Blásarasveitum Tónlistarskólans á Akureyri, en að auki fá nemendur tækifæri til að spila í minni samspilshópum. Kennt er eftir aðalnámskrá tónlistarskóla og básúnunemendur byrja að sækja tónfræðitíma þegar kennarar telja það tímabært.

Námsleiðir í boði

Fornám (5-9 ára) Áfangabraut (5 ára+) Stúdentsbraut

Sóley Björk Einarsdóttir
Kennari, hljómsveitastjóri og fagstjóri
Málmblástur, Blásarasveit, Tónfræði

Sóley Björk Einarsdóttir er fagstjóri blásaradeildar Tónlistarskólans á Akureyri og kennir á ýmis málmblásturhljóðfæri. Þar að auki stjórnar hún A og C blásarasveitum við Tónlistarskólann.Sóley lauk framhaldsnámi í klassískum trompetleik frá Royal Conservatory of The Hague í Hollandi ásamt tveimur aukagráðum í kennslufræði og barokktrompetleik. Einnig er hún meðlimur Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og kammersveitinni Elju. Sóley byrjaði að kenna við Tónlistarskólann haustið 2018 og leggur mikinn metnað í að styrkja starf blásara á Akureyri. „Í kennslunni legg ég áherslu á að vekja áhuga nemenda, finna hvaða leiðir henta þeim svo þeir nái árangri og að gleðin sé ekki langt undan. Í námi sem ekki er skyldunám skiptir miklu máli að nemandanum líði vel og það sé gaman til þess að hann haldi áfram og nái árangri. Það er ótrúlega gaman og ómetanlegt að sjá nemendur blómstra í hljómsveitarstarfinu, bæði félagslega og á hljóðfærinu sínu“