Fara í efni

Blokkflauta

Blokkflautan er oft það hljóðfæri sem ungir tónlistarnemendur kynnast fyrst og þá oft í forskóla. Blokkflautur eru tiltölulega ódýr hljóðfæri og meðfærileg sem gerir þær vel til þess fallnar að kenna byrjendum og þá jafnvel í hóp. En blokkflautan er alls ekki bara byrjendahljóðfæri. Hún á sér langa og merkilega sögu og fyrir hana hefur verið samið mjög mikið af frábærri tónlist.

Blokkflautur eru til í ýmsum stærðum og gerðum en sópran-blokkflauta er algengust (sú sem kennd er í forskóla). Aðrir meðlimir blokkflautufjölskyldunnar eru sópranínó-, alt-, tenór- og bassablokkflautur. Fínustu blokkflauturnar eru síðan úr tré, enda flokkast blokkflautan sem tréblásturshljóðfæri.

Blokkflauta

Algengt er að nemendur hefji nám á sópran-blokkflautu 6–7 ára gamlir og býður tónlistarskólinn upp á blokkflautuforskóla fyrir nemendur í fyrsta bekk ár hvert, með fyrirvara um næga þátttöku. Þegar líður á námið skipta nemendur yfir á altblokkflautu. Talsvert er til af kennsluefni og tónlist fyrir sópranblokkflautu en megnið af tónbókmenntum blokkflautunnar er fyrir altblokkflautu og því nauðsynlegt að nemendur hafi hana sem aðalhljóðfæri þegar líður á námið.

Tónlistarskólinn leigir út hljóðfæri til nemenda sinna fyrstu árin en yfirleitt er gert ráð fyrir að nemendur eignist eigið hljóðfæri þegar þeir eru komnir nokkuð áleiðis í námi sínu. Mikilvægt er að ráðfæra sig við kennara þegar kemur að hljóðfærakaupum.

Námsleiðir í boði

Fornám (5-9 ára) Áfangabraut (5 ára+) Stúdentsbraut