Fara í efni

Selló

Í strengjafjölskyldunni eru eftirtalin hljóðfæri, fiðla, víóla, selló og kontrabassi. Strengjahljóðfærin eru búin til úr við, afar fínleg og nákvæm smíð. Strengir á hljóðfærunum eru fjórir og leikið á þau með boga. Í boganum eru hrosshár sem strokið er eftir strengjunum og myndast þannig tónn. Strengjahljóðfærin eru smíðuð í mismunandi stærðum þannig krakkar geta snemma farið læra á þessi hljóðfæri, allt frá 4-5ára aldri.

Selló er talsvert stærra hljóðfæri en fiðlan og víólan og með mun dýpra tónsvið. Á selló er leikið sitjandi með hljóðfærið á milli hnjánna. Fingur vinstri handar eru síðan settir á strengina til breyta tónum. Boginn hafður í hægri hendi og strokið eftir strengjunum.

Selló

 

Nemendur hefja strengjahljóðfæranámið á öllum aldri og allt frá 4-5 ára. Þegar þeir hafa náð grunntökum á hljóðfærinu og nótnalestri er þeim boðið að taka þátt í hljómsveitarstarfi. Seinna meir fá þau að læra að spila í minni samspilshópum Tónlistarskólinn á Akureyri er með Suzukideild þar sem mikil áhersla er lögð á nám fyrir yngri nemendur, hlustun, og hópastarf. Nemendur í Suzukideild eru þó í raun einnig í Áfanganámi og geta tekið grunn- mið og framhaldspróf eins og aðrir nemendur þegar framvindan verður meiri. Sömuleiðis er hægt að velja hefðbundið tónlistarnám á áfangabraut eins og á önnur hljóðfæri. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um námsleiðir hér fyrir neðan.

Námsleiðir í boði

Fornám (5-9 ára) Áfangabraut (5 ára+) Stúdentsbraut

Ásdís Arnardóttir
Kennari
Selló, Suzukiselló, Kontrabassi, Sellókór, Strengjasveit 2

Ásdís Arnardóttir eða Dísa Selló er frábær kennari.  Hún kennir á selló, kontrabassa og stjórnar strengjasveitum svo fátt eitt sé nefnt og kennir samkvæmt Suzukiaðferðinni.  Dísu er margt til lista lagt.  Hún spilar með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, er í stjórn Tónlistarfélags Akureyrar og er alltaf að gera eitthvað skemmtilegt hvort sem það er að skipuleggja skólatónleika eða standa fyrir kammertónleikum á Akureyri.  Ásdís var bæjarlistarmaður Akureyrarbæjar árið 2021.

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir
Deildarstjóri og kennari
Selló, Forskóli, Solféges, Ritm. tónheyrn
"Ég byrjaði að læra á selló þegar ég var fjögurra ára. Stundum langaði mig ekki að æfa mig, en ég gerði það samt, og hef alltaf verið mjög glöð yfir því, því það er gaman að geta spilað og samið tónlist.
 
Ég lærði helling í tónlist, á Íslandi, í Svíþjóð og í Frakklandi. Í Frakklandi spilaði ég mjög mikla barokktónlist. Hér á Akureyri fæst ég við alls konar - sinfóníska tónlist, barokktónlist, þjólagatónlist, nútímatónlist... - bý til lög og ljóð, syng og spila á selló, og kenni klárum krökkum í tónó. Mikið stuð!"