Fara í efni

Víóla

Í strengjafjölskyldunni eru eftirtalin hljóðfæri, fiðla, víóla, selló og kontrabassi. Strengjahljóðfærin eru búin til úr við, afar fínleg og nákvæm smíð. Strengir á hljóðfærunum eru fjórir og leikið á þau með boga. Í boganum eru hrosshár sem strokið er eftir strengjunum og myndast þannig tónn. Strengjahljóðfærin eru smíðuð í mismunandi stærðum þannig krakkar geta snemma farið læra á þessi hljóðfæri, allt frá 4-5ára aldri.

Víólan hefur sömu byggingu og fiðlan nema hún er stærri. Víólan hefur dýpra tónsvið og mun mildari tón en fiðlan. Á víólu er haldið þannig hljóðfærið er sett á vinstri öxl, og vanginn lagður á þar til gert bretti, hökubretti. Fingur vinstri handar eru síðan settir á strengina til breyta tónum. Boginn hafður í hægri hendi og strokið eftir strengjunum.

Víóla

 

Nemendur hefja strengjahljóðfæranámið á öllum aldri og allt frá 4-5 ára. Þegar þeir hafa náð grunntökum á hljóðfærinu og nótnalestri er þeim boðið að taka þátt í hljómsveitarstarfi. Seinna meir fá þau að læra að spila í minni samspilshópum. Tónlistarskólinn á Akureyri er með Suzukideild þar sem mikil áhersla er lögð á nám fyrir yngri nemendur, hlustun, og hópastarf. Nemendur í Suzukideild eru þó í raun einnig í Áfanganámi og geta tekið grunn- mið og framhaldspróf eins og aðrir nemendur þegar framvindan verður meiri. Sömuleiðis er hægt að velja hefðbundið tónlistarnám á áfangabraut eins og á önnur hljóðfæri.  Hægt er að nálgast allar upplýsingar um námsleiðir hér fyrir neðan.

Námsleiðir í boði

Fornám (5-9 ára) Áfangabraut (5 ára+) Stúdentsbraut

Eydís S. Úlfarsdóttir
Kennari
Söngur, Víóla, Suzukivíóla, Strengjasveit 3

Eydís nam víóluleik við Tónlistarskólann á Akureyri og útskrifaðist af tónlistarbraut MA. Framahaldsnám stundaði hún við Konunglega Concervatorium í Brussel og Concervatorium í Amsterdam. Eydís lagði stund á söngnám í Tónlistarskólanum í Garðabæ og TA. Framhaldsnám í söng stundaði hún í London og söngkennaranám í Söngskólanum í Reykjavík. Eydís hefur starfað sem söng- og víólukennari við Tónlistarskólann á Akureyri frá árinu 2006. Hún hefur verið virkur þátttakandi í tónlistarlífi á Norðurlandi,