Kjörnámsbraut við Menntaskólann á Tröllaskaga
Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs á kjörnámsbraut MTR er 200 einingar, þar af eru 86 einingar í kjarna í MTR. Hér má sjá skipulag kjörnámsbrautar MTR.
Í Tónlistarskólanum á Akureyri eru
-
54 einingar í kjarna í námsleiðinni Skapandi tónlist en nemendur þurfa að minnsta kosti að ljúka 36 einingum til viðbótar í TA (samtals 90 einingar). Þá eru 24 einingar sem nemendur hafa í frjálsu vali.
-
94 einingar í kjarna í námsleiðinni Klassísk tónlist. Þá eru 20 einingar sem nemendur hafa í frjálsu vali.
-
96 einingar í kjarna í námsleiðinni Rytmísk tónlist. Þá eru 18 einingar sem nemendur hafa í frjálsu vali.
Nánari upplýsingar veita Guðrún Ingimundardóttir, aðstoðarskólastjóri TA, gudruni@tonak.is, og Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, aðstoðarskólameistari, villa@mtr.is.