Fara í efni

Mið- og framhaldsnám í Ritmískri Tónlist

Ritmísk deild
Nemendur sem lokið hafa námi í grunntónfræði G2 sækja miðnám í tónfræði sem miðað er að þeirri námsleið sem þeir leggja stund á hvort sem það er klassísk tónlist, ritmísk tónlist eða skapandi tónlist.  Áfangarnir eru misjafnir að gerð og lagaðir að viðfangsefninu.  Í miðnámi  bætast við nýjir áfangar auk þess sem nemendur geta valið ýmsa valáfanga sem vekja áhuga þeirra.   Nemendur sem velja að stunda nám í ritmískri tónlist sækja áfanga samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla sem gefin er út af Mennta-, og menningarmálaráðuneytinu.  Framkvæmd námsmats og skipulag prófa í ritmískum tónfræðigreinum er alfarið í höndum skólans.