5 nemendur í USÍ
5 nemendur í USÍ
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands lék Sheherazade eftir Rimskíj-Korsakov í Eldborg undir stjórn Nathanaël Iselin við frábærar undirtektir í Eldborgarsal Hörpu í gær, sunnudaginn 20. september.
SÍ hefur starfrækt USÍ síðan 2009 og markmið hennar er "að gefa tónlistarnemendum innsýn og vettvang til að kynnast hinum sinfóníska heimi af eigin raun og njóta þjálfunar og leiðsagnar í hljómsveitarleik eins og um atvinnumennsku væri að ræða" eins og segir á heimasíðu SÍ. Hljóðfæraleikarar Ungsveitarinnar þurfa að standast prufuspil sem líkir eftir aðstæðum prufuspila hjá Sinfóníuhljómsveitinni.
Að þessu sinni tóku 5 nemendur TónAk þátt; þær Elísabet Ósk Newman slagverksleikari, Hanna Lilja Arnarsdóttir sellóleikari, Lára Rún Keel Kristjánsdóttir trompetleikari, Þórhildur Eva Helgadóttir víóluleikari og síðast en ekki síst söngnemandinn og tónfræðikennarinn Mahaut Ingiríður Matarel sem er líka hörpunemandi. Elías Dýrfjörð kontrabassaleikari og fyrrum nemandi okkar lék einnig með sveitinni í ár. Öll stóðu þau sig með prýði og við erum mjög stolt af þessum glæsilegu fulltrúum. Við þökkum Brekkuskóla og Menntaskólanum á Akureyri fyrir að gefa krökkunum frí frá skóla svo þau gætu tekið þátt.
Myndin er fengin að láni af fb-síðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands.