Fara í efni

Brenndu bananarnir senda frá sér nýtt lag

Brenndu bananarnir senda frá sér nýtt lag

Hljómsveitin Brenndu bananarnir var að senda frá sér splunkunýtt lag sem ber nafnið Komndu með hann strax!!, og fjallar um vandamál sem flestir þekkja, þeas að lána vini penna og fá hann svo ekki til baka fyrr en allt of seint.

Hekla Magnúsdóttir, aðallagahöfundur hljómsveitarinnar er á fyrsta ári í Skapandi tónlist hér við Tónlistarskólann á Akureyri og nýja lagið er hluti af tónlistarverkefni hennar þar.

Hekla spilar á hljómborð og syngur í laginu, en auk hennar er Sigrún, sem spilar á hljómborð og syngur, Valdimar sem spilar á trommur og Grétar sem spilar á bassa.

Hekla tók upp lagið, hljóðblandaði og masteraði.

Lagið má finna á streymisveitum. Hér er það á Spotify.

Lagið er líka komið á spilunarlista Tónlistarskólans sem finna má hér að neðan.