Fara í efni

Dream The Name með nýja sex laga plötu

Dream The Name með nýja sex laga plötu

Nýlega sendi hljómsveitin Dream The Name frá sér 6 laga plötu sem ber nafnið Fragments. Platan var tekin upp í Studio Sýrlandi þar sem Jökull Karlsson, fyrrverandi nemandi hér við tónlistarskólann sá um upptökur. Í hljóðverinu var hljómsveitin voru eftirfarandi meðlimir í Dream The Name: Daniel Alpi (Gítar/Söngur), Alexander Örn (Lead Gítar/ BakRaddir) ,Valtyr Steinar (Trommur) og Jóel Örn (Bassa/ Synth). Þeir Daniel og Alexander eru nemendur í skapandi tónlist er platan hluti af tónlistarverkefni þeirra þetta árið. Jóel Örn er nemandi í rytmískri deild skólans.

Platan er nokkurs konar concept plata þar sem umfjöllunarefnið er stríð og hvernig áhrif þau hafa á fólk, bæði almenning og hermenn. Stríðið í Úkraínu byrjaði svo skömmu eftir að hljómsveitin samdi plötuna.

Tvö lög af plötunni sem saman mynda heild eru komin á spilunarlista Tonak

Hér má svo hluta á plötuna í heild sinni.