Fara í efni

Framhaldsprófstónleikar

Framhaldsprófstónleikar

Laugardaginn 18. nóvember kl. 17:00 heldur Anna Eyfjörð framhaldsprófstónleika í rytmískum söng í Hömrum í Hofi.  Anna hefur lært rytmískan söng hjá Þórhildi Örvarsdóttur undanfarin ár og á efnisskránni eru íslensk og erlend sönglög. Undirleik annast kennarahljómsveit skólans sem er skipuð Kristjáni Edelstein, Stefáni Ingólfssyni, Rodrigo Lopes og Risto Laur.

Allir hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis.