Fara í efni

Framhaldsprófstónleikar Hugrúnar Lilju Pétursdóttur á píanó

Framhaldsprófstónleikar Hugrúnar Lilju Pétursdóttur á píanó

Hugrún Lilja Pétursdóttir heldur framhaldsprófstónleika sína á píanó þriðjudagskvöldið 28. nóvember kl. 20:00 í Hömrum, Hofi

Hugrún Lilja Pétursdóttir hóf nám við Tónlistarskólann á Akureyri haustið 2019 en hún sleit barnsskónum í Langadal og hóf tónlistarnám við Tónlistarskólann á Blönduósi ung að árum.Á framhaldsprófstónleikum sínum á þriðjudaginn leikur Hugrún fjölbreytta efnissikrá sem sýnir viðfangsefni píanóleikara á breiðum grunni allt frá Johann Sebastian Bach til Scott Joplin.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin !