Fara í efni

Framhaldsprófstónleikar Styrmis Þeys Traustasonar

Framhaldsprófstónleikar Styrmis Þeys Traustasonar

Styrmir Þeyr Traustason er að ljúka framhaldsnámi sínu í klassískum píanóleik við Tónlistarskólann á Akureyri í vor og verða framhaldsprófstónleikar hans haldnir miðvikudaginn 4. maí kl. 20.00. Þar verða flutt verk eftir Bach, Beethoven, Chopin, Debussy og Franz Liszt ásamt frumsömdu verki. Tónleikarnir verða haldnir í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi.  Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
 
Meðleikarar á tónleikum eru þær Eva Líney Reykdal á selló og Íris Orradóttir á klarinett