Fara í efni

Gestir frá Bečov

Gestir frá Bečov

Þrettán manna hópur á vegum Erasmus er í heimsókn á Akureyri. Það eru nemendur og kennarar frá listaskólanum í Bečov í Tékklandi. Bečov er þúsund manna bær, en í listaskóla bæjarins eru kenndar margar listgreinar, þ.á.m. tónlist, myndlist, og ljósmyndun.

Fjórir tónlistarnemar, fjórir myndlistarnemar og kennarar þeirra kynna skólann sinn og leika á fiðlur, selló og píanó miðvikudaginn 14. september kl. 17 í Nausti.

Öll velkomin!