Fara í efni

Sellóleikur Hafliða Hallgríms kominn út á geisladisk

Sellóleikur Hafliða Hallgríms kominn út á geisladisk

Nýlega kom út tvöfladur geisladiskur með sellóleik Hafliða Hallgrímssonar. Hafliði hefur á síðustu áratugum getið sér gott orð sem tónskáld en í upphafi tónlistarferils síns var hann sellóleikari „par excellence“. Hann var einn af fyrstu sellónemendum Tónlistarskólans á Akureyri árið 1952 þá 11 ára gamall, fyrir 70 árum síðan. Á síðasta ári fagnaði Hafliði 80 ára afmæli sínu.

Á ferli sínum sem sellóleikari lék Hafliði oft á einleikstónleikum á Íslandi og á Bretlandseyjum þar sem hann hefur búið lengst af æfi sinnar. Hafliði þreytti frumfraun sína sem einleikari í Wigmore Hall í London árið 1971 en hann hefur einnig leikið með fjölda kammersveita m.a. Ensku kammersveitinni og sem sóló sellisti í Skosku kammersveitinni.

Að frumkvæði Halfiða hefur Polarfonia Classics ehf. nú gefið út úrval hljóðrita frá ýmsum tímum þar sem Hafliði „gerir hreint fyrir sínum dyrum hvað sellóleikinn varðar“, eins og hann orðar það sjálfur. Á diskunum leikur hann ýmist einn eða í samleik með öðrum, m.a. með SÍ.