Fara í efni

Hausttónleikaveisla C-blásarasveitar ásamt gestum

Hausttónleikaveisla C-blásarasveitar ásamt gestum

Undanfarin ár hafa blásarasveitir skólans haldið glæsilega tónleika í október. Í ár verður ekki síður glæsileg tónleikaveisla en C-blásarasveit tónlistarskólans á Akureyri heldur hausttónleika sína miðvikudaginn 19. október kl 19:30 í Hamraborg Hofi. Að vanda er ókeypis aðgangur.

Að þessu sinni fáum við góða gesti, Lewisham Concert Band frá London. Sveitirnar leika saman og sitt í hvoru lagi efnisskrá sem samanstendur af íslenskri og breskri blásarasveitartónlist auk trompetkonserts eftir Alexander Arutunian.

Einleikari verður Matilda Lloyd trompet. Hún er margverðlaunuð fyrir trompetleik; vann BBC Young Musician of the Year Brass Final árið 2014 og hlaut fyrstu verðlaun í Eric Aubier trompetkeppninni 2015. Hún er eftirsóttur einleikari og mun halda masterklass fyrir trompetnemendur Tónlistarskólans á Akureyri á meðan á dvöl hennar stendur.

Tónleikarnir hefjast kl 19:30 og er aðgangur ókeypis.