Helga Björg stýrir SÍ
10.02.2026
Helga Björg stýrir SÍ
Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur á hverju ári fyrir hljómsveitarstjóraakademíu þar sem tónlistarnemum gefst kostur á að nema undir handleiðslu Evu Ollikainen og fá að prófa að stjórna sinfóníuhljómsveitinni. Nokkrum nemendum er svo boðið að stjórna SÍ á hádegistónleikum.
Helga Björg Kjartansdóttir víólunemandi tók þátt nú í ár og það er skemmst frá því að segja að hún fékk að stíga á stjórnendapall á lokatónleikunum og stjórnaði þar 3ja þættinum úr Sinfóníu nr. 40 í g-moll eftir W.A. Mozart. Til hamingju Helga Björg!
Myndin er fengin af fb síðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands.