Fara í efni

Hljóðs bið ek allar helgar kindir. Tónleikar þann 24. apríl í Hofi

Hljóðs bið ek allar helgar kindir. Tónleikar þann 24. apríl í Hofi

Hljóðs bið ek allar helgar kindir.

Þórir Jóhannsson, kontrabassaleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir, píanóleikari flytja tónlist eftir Zoltán Kodály, Giovanni Bottesini, Max Bruch, Árna Egilsson, Karólínu Eiríksdóttur og Þórð Magnússon. Tónleikarnir verða í Hofi 24. apríl kl. 16:00.

Þórir og Ingunn tefla fram þessari óvenjulegu blöndu hljóðfæra í verkum sem ýmist eru samin fyrir þessa samsetningu eins og Rhapsodia Þórðar, Völukvæði Árna og Fantasia Bottesinis eða Gradus ad Profundum sem samið er fyrir einleiksbassa og Kol Nidrei sem og Epigrammák sem eru aðlöguð þessum hljóðfærum. Kontrabassinn hefur sótt í sig veðrið undanfarna áratugi sem einleikshljóðfæri en verður að teljast enn frekar óþekkt í íslenskri tónlistarflóru. Ingunn og Þórir vilja bæta úr því en samstarf þeirra hófst árið 2012 þegar þeim var boðið að spila á alþjóðlegri ráðstefnu kontrabassaleikara í Kaupmannahöfn.

Tónleikarnir eru á vegum Tónlistarfélags Akureyrar og í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar. Einnig eru þeir styrktir af Tónlistarsjóði.

Yfirskrift:

Hljóðs bið ek allar helgar kindir.

Efnisskrá

Árni Egilsson Völukvæði

Zoltán Kodály Epigrammák

Giovanni Bottesini Fantasia sulla “La Sonnambula”

Hlé

Karólína Eiríksdóttir Gradus ad Profundum

Þórður Magnússon Rhapsodia per Contrabasso et Piano

Max Bruch Kol Nidrei