Hrekkjavökutónleikar Blásarasveita slógu í gegn !
29.10.2026
Hrekkjavökutónleikar Blásarasveita slógu í gegn !
Árlegir hrekkjavökutónleikar blásarasveita Tónlistarskólans á Akureyri fóru fram í gær fyrir troðfullu húsi þar sem allar þrjár sveitir skólans spiluðu nokkur lög hver og í lokin kom allur hópurinn saman í lokalagi tónleikanna. Urður Bergsdóttir var sögumaður kvöldsins. Óhætt er að segja að vel hafi tekist til enda allt lagt í sölurnar til að gera tónleikana sem glæsilegasta. Hér má sjá nokkrar myndir frá tónleikunum sem Sindri Swan smellti af fyrir okkur.









