Fara í efni

Hugarró í skammdeginu - FRESTAÐ

Hugarró í skammdeginu - FRESTAÐ

ATH !

Tónleikunum hefur verið frestað vegna veikinda, þeir verða auglýstir aftur þegar þar að kemur.

Tónleikar í Glerárkirkju fimmtudaginn 17. nóvember kl. 20:00

Fyrir tveimur árum gaf Margrét Árnadóttir út plötuna Hugarró í samstarfi við Kristján Edelstein gítarleikara. Platan inniheldur 11 bænalög í hugljúfum útsetningum. Á tónleikunum verða meðal annars flutt lög af plötunni. Sköpuð verður róandi stemning sem er til þess fallin að leita inná við, gleyma amstri dagsins og hjálpa okkur

að takast á við næsta dag með frið í hjarta.

 

Söngur: Margrét Árnadóttir

Gítar: Kristján Edelstein

Gítar: Daniele Basini

 

Miðasala við innganginn.

Miðaverð: 3500.-