Fara í efni

Jodeljodeljodeljoooo!!! Október-réttarfest og Fjölskyldu-haustgleði!

Jodeljodeljodeljoooo!!! Október-réttarfest og Fjölskyldu-haustgleði!

Haustið er komið - senn líður að rjúpnavertíð - það er ekki covid - réttir eru á góðri leið!

Fullt af góðum ástæðum til að fagna (:

Gleðigengið Tríó Akureyrar og Ella Vala Ármannsdóttir munu halda upp á haustið með söng og hressleika á þremur stöðum á Norðurlandi á næstu þremur vikum:

 

7. okt kl. 20:00 í Bergi, Dalvík - Októbergleði. Hluti af tónleikaröðinni Klassík í Bergi og styrkt af Menningarsjóði Dalvíkurbyggðar
https://www.facebook.com/events/1491234838042396/?ref=newsfeed

16. okt kl. 16:00 í Skjólbrekku, Skútustöðum - Fjölskyldu-haustgleði í samstarfi við Kvenfélagið Iðunni sem mun selja veitingar meðan á skemmtuninni stendur. Tónleikarnir eru styrktir af Skútustaðahreppi
https://www.facebook.com/events/477978774212472/?ref=newsfeed

22. okt kl. 16:00 í Laugarborg, Hrafnagili- Fjölskyldu-haustgleði í samstarfi við Kvenfélag Mývantssveitar sem mun selja veitingar meðan á skemmtuninni stendur. Tónleikarnir eru styrktir af Samfélagssjóði Norðurorku
https://www.facebook.com/events/1216484652231692/?ref=newsfeed

 

Fjölskyldugleðirnar eru samkomur með tónlist, samsöng, vöfflum og gleði!

Hress lög og róleg í bland, eitthvað til að létta lundina, eitthvað til að dilla sér við og eitthvað til að syngja með. Október-réttarfestið er hins vegar aðeins sterkari blanda af íslenskum réttarsöngvum og þýskum októberfest-lögum frá Þýskalandi og Austurríki.

 

Tríó Akureyrar samanstendur af þeim Valmari Väljaots fiðluleikara, organista, kórstjóra o.fl., Jóni Þorsteini Reynissyni harmonikkuleikara, söngvara og tónlistarkennara, og Erlu Dóru Vogler söngkonu og verkefnastjóra. Fyrir haustdagskrána hafa þau fengið til liðs við sig hina ofur svölu Ellu Völu Ármannsdóttur horn- og altmugligtleikara.