KRÚTT-TÓNÓ
03.10.2025
KRÚTT-TÓNÓ
Langar þig að syngja með ungbarninu þínu og njóta tónlistar í góðum hópi?
Tónlistarskólinn á Akureyri býður 4-12 mánaða gömul börn í fylgd foreldris velkomin á námskeið með Sigrúnu Mögnu Þórsteinsdóttur.
Sex föstudagsmorgnar, 17. október til 21. nóvember
kl. 10:00-10:40 í tónlistarskólanum í Hofi
Verð fyrir eitt barn á allt námskeiðið: 10.000 kr
Takmarkað pláss í boði
Skráning fer fram í tölvupósti á tonak@tonak.is
Hlökkum til að sjá ykkur!
Tónlistarskólinn á Akureyri
Menningarhúsinu Hofi
Strandgötu 12
s: 460 1170
tonak.is