Lára Rún stýrir SÍ
Lára Rún stýrir SÍ
Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur á hverju ári fyrir hljómsveitarstjóraakademíu þar sem tónlistarnemum gefst kostur á að nema undir handleiðslu eins af hljómsveitarstjórum hljómsveitarinnarog fá að prófa að stjórna sinfóníuhljómsveitinni og að þessu sinni var Daníel Bjarnason leiðbeinandi í akademíunni. Nokkrum nemendum er svo boðið að stjórna SÍ á hádegistónleikum.
Að þessu sinni tók einn núverandi nemandi skólans þátt og einn fyrrverandi en það voru þau Lára Rún Keel Kristjánsdóttir sem lærir á trompet hjá okkur og Ýmir Haukur Guðjónsson sem útskrifaðist með framhaldspróf frá Tónak 2024. Það er skemmst frá því að segja að þau fengu bæði að stíga á stjórnendapall á lokatónleikunum. Til hamingju Lára Rún og Ýmir Haukur!
Myndirnar eru fengnar af fb síðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
