Fara í efni

Líf og fjör í blásaraheiminum ! ATH breyttur tími á tónleikum vegna veðurs !

Líf og fjör í blásaraheiminum ! ATH breyttur tími á tónleikum vegna veðurs !

Nú um helgina, 7. - 9.október, verður líf og fjör í blásaraheiminum á Akureyri. 250 nemendur úr öllum eldri skólahljómsveitum landsins mæta norður, blandast í þrjár risa-hljómsveitir og æfa alla helgina! Stjórnendur sveitanna verða:

Bjarni Frímann Bjarnason, Eiríkur Rafn Stefánsson og Karen Sturlaugsson.

Blásið verður svo til heljarinnar tónleikaveislu í Hamraborg, Hofi – laugardagskvöldið 8.október kl. 20:00-21:00. Ókeypis aðgangur og öll velkomin! Styðjum öflugt blásarsveitastarf og fjölmennum á þennan einstaka viðburð á laugardagskvöldið!