Fara í efni

Listsjóðurinn VERÐANDI auglýsir eftir umsóknum fyrir starfsárið 2023 - 2024

Listsjóðurinn VERÐANDI auglýsir eftir umsóknum fyrir starfsárið 2023 - 2024

Sjóðurinn veitir styrki til kostnaðar vegna afnota af salarkynnum, tæknibúnaði, tækniþjónustu og framhúsi ásamt auglýsingu í ljósakassa.

Helstu markmið sjóðsins eru að auðvelda ungu listafólki og þeim sem standa utan stofnanna að nýta sér þá fyrirmyndar aðstöðu sem Hof hefur uppá að bjóða, stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum í húsunum og nýta möguleika þeirra sem best.

VERÐANDI er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningafélags Akureyrar.

Hér má finna allar upplýsingar um sjóðinn.