Matiss Leo Meckl ásamt samnemanda sigraði Grachtenfestival Conservatorium Concours (GCC) keppnina.
Matiss Leo Meckl ásamt samnemanda sigraði Grachtenfestival Conservatorium Concours (GCC) keppnina.
Matiss Leo Meckl ásamt samnemanda sínum við Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag, Hollandi Tirzo Garrigós sigruðu Grachtenfestival Conservatorium Concours (GCC) keppnina.
Sunnudaginn 8 febrúar fóru fram úrslitatónleikar hinnar árlegu tónlistarnema-keppni Grachtenhátíðarinnar í Amsterdam. Fyrrum nemandi tónlistarskólans á Akureyri, Matiss Leo Meckl sem útskrifaðist héðan vorið 2024 tók þátt með Puruñeka Duo, þeir félagar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu keppnina.
Dómararnir töldu þá skara framúr með frumlegri nálgun á slagverkssamleik.
Í verðlaun hlutu þeir peningastyrk og tækifæri á að koma fram á Grachten-hátíðinni í sumar. Hátíðin er stærsta klassíska og jazz tónlistarhátíð Hollands.
Tónlistarskólinn á Akureyri er gífurlega stoltur af þessum merka árangri og óskar Matiss og Tirzo innilega til hamingju.