Fara í efni

MICHAEL Á TÓLF TÓNA KORTÉRI

MICHAEL Á TÓLF TÓNA KORTÉRI

"Hljóð. Litur. Bassaklarinett.

Þar á meðal litir Erics Dolphy.

Samsetning lita í samtímanum."

 

Svona kemst Michael Weaver, klarinettukennarinn okkar, að orði um tón-fyrirætlanir sínar. En Michael kemur fram á TÓLF TÓNA KORTÉRINU á Listasafni Akureyrar laugardaginn 1. október kl. 15:00 og aftur kl. 16:00. Hann leikur þar tvenna kortérslanga tónleika og flytur tvær hugleiðingar eftir sjálfan sig um HLJÓÐ OG LIT auk verksins "God bless the child" eftir Billie Holiday/Eric Dolphy.

 

Aðgangur er ókeypis.

Við hvetjum nemendur okkar til að sæta færis að heyra tónagrúsk Michaels og forvitnileg hljóð úr bassaklarinetti!