Fara í efni

Mikið um að vera hjá blásaradeildinni

Mikið um að vera hjá blásaradeildinni

Blásaradeildin er á fleigiferð þessa dagana. Næsta fimmtudag, 7. maí, verða árlegir vortónleikar blásarasveitanna haldnir í Hömrum kl. 17:30 undir yfirskriftinni "Ertu ekki að grínast?!" Ókeypis er inn á tónleikana og öll velkomin.

Strax morguninn eftir bjóða blásarasveitir grunnskólum bæjarins til tónleika og sama dag verður síðan kynning hjá blásaradeild skólans þar sem öll eru velkomin sem langar að prófa að blása í hljóðfæri.