Nótan á Norðurlandi 2026
Nótan á Norðurlandi 2026
Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskólanna verður haldin víðsvegar um land þann 12. og 18. apríl. Tónlistarskólarnir á Norðurlandi verða með tónleika í Laugarborg, Eyjafjarðarsveit þann 12. apríl kl. 13:30 þar sem fram koma nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri, Tónlistarskóla Eyjafjarðar, Tónlistarskólanum á Tröllaskaga, Tónlistarskóla Húsavíkur og Tónlistardeild Stórutjarnarskóla.
Tónlistarskólar landsins eru um 80 talsins og um 14.000 nemendur stunda nám innan tónlistarskólakerfisins. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar er að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda.
NÓTAN – uppskeruhátíð tónlistarskóla var fyrst haldin skólaárið 2009-2010 og er árlegur viðburður í kerfi tónlistarskóla á Íslandi. Að Nótunni standa Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Samtök tónlistarskólastjóra og Félag íslenskra hljómlistamanna.
Hátíðin er í senn faglega hvetjandi og skemmtilegt innlegg í skólastarfið fyrir alla aðstandendur skólanna jafnt innan veggja þeirra sem utan.
Öll velkomin og aðgangur ókeypis