Fara í efni

Opinn masterclass

Opinn masterclass

Rytmíska söngdeildinni ætlar að halda opinn masterclass á mánudaginn næsta, 7. nóvember. Þar er gestum og gangandi boðið að kíkja inn í kennslustund hjá þeim og hlusta á og fylgjast með starfinu sem þar fer fram. Viðburðurinn verður sem fyrr sagði mánudaginn 7. nóvember, kl. 17-19 í Dynheimum (2. hæð í Hofi).

Hér er upplagt tækifæri fyrir fjölskyldur og vini að sjá hvað þau eru að gera í söngdeildinni auk þess sem þeim þætti gaman að sjá sem flesta nemendur og kennara úr öðrum deildum Tónlistarskólans!

Staður og stund:

Opinn masterclass í Rytmísku söngdeildinni

Mánudaginn 7. Nóvember

Kl. 17-19

Dynheimum, 2. hæð, Hofi