Fara í efni

SÍGILD SÍÐDEGI TÓNAK - PETREA OG MICHAEL

SÍGILD SÍÐDEGI TÓNAK - PETREA OG MICHAEL

Petrea Óskarsdóttir og Michael Weaver halda tónleika á Minjasafninu á Akureyri sunnudaginn 20. nóvember kl 14:00

Leikin verða ýmis verk fyrir þverflautu og klarinett og norðlenskur frumflutningur verður á verkinu Shimmer of Light fyrir einleikspikkoló og hljóðverk eftir Sunnu Friðjónsdóttur.

Petrea og Michael eru bæði kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri.

Öll velkomin, ókeypis er á viðburðinn !

Sígild síðdegi eru viðburðir á vegum Tónlistarskólans á Akureyri, haldnir ýmist í Hofi eða í samstarfi við söfn og fleiri staði á Akureyri. Þar koma kennarar skólans fram eða halda fyrirlestra og hvers kyns kynningar um tónlistarstarf sitt, en einnig utanaðkomandi tónlistarfólk. Tónlistin er hér skoðuð á alla kanta til fróðleiks, gamans og yndisauka!