Simone Salvatori í Hömrum, Hofi
Simone Salvatori í Hömrum, Hofi
Það er með sannri ánægju sem Tónlistarfélagið kynnir ítalska gítarleikarann Simone Salvatori. Hann hefur undanfarin ár unnið til fjölda verðlauna í alþjóðlegum gítarkeppnum og átt farsælan feril og hlotið lof gagnrýnenda víða um heim sem gítarleikari og kammertónlistarmaður. Á þessum tónleikum teflir hann fram rödd gítarsins við hina ástríðufullu ítölsku óperu og leikur m.a. verk eftir Verdi, Rossini og Puccini. Hann tvinnar saman heimi óperunnar við ljúfa rödd gítarsins þannig að útkoman verður einstaklega áhugaverð þar sem laglínur, rómantík og fingrafimi ganga í eina sæng.
Tónleikarnir verða haldnir næsta sunnudag 19. október kl 16 í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Tónleikarnir eru um klukkutími að lengd og er tilvalið að bjóða börnum og ungmennum með þar sem þau fá frítt á tónleikana.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Hvítar Súlur-Tónlistarfélagið og eru haldnir í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.
Miðasala er á tix.is, mak.is og í Menningarhúsinu Hofi. Miðaverð er 3500 krónur, frítt fyrir ungmenni innan 18 ára og 20% afsláttur fyrir félagsmenn í Tónlistarfélagi Akureyrar.