Fara í efni

Skólaslit Tónlistarskólans 2026

Skólaslit Tónlistarskólans 2026

Skólaslit Tónlistarskólans á Akureyri fóru fram mánudaginn 1 júní í Hamraborgarsal Hofs. Alls voru 41 nemandi sem kláraði grunn-, mið- og framhaldspróf og voru kölluð á svið til að taka við prófskírteinum. 5 nemendur útskrifuðust af skapandi deild. 3 nemendur fengu viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur og 2 hlutu styrk úr Þorgerðarsjóði en Norðurorka hefur styrkt sjóðinn veglega undanfarin 3 ár sem hefur gert það að verkum að hægt er að veita góða styrki úr sjóðnum. 

Ræða Hjörleifs Arnar Jónssonar skólastjóra og myndir frá skólaslitum má sjá hér fyrir neðan. 

"Kæru tónlistarunnendur og vinir.

Í ár eru áttatíu ár liðin síðan skólinn okkar var settur í fyrsta sinn. Áttatíu. Þegar maður segir það upphátt er það bara tala. En reynum samt að ná aðeins utan um þessa staðreynd saman. Áttatíu ár er nokkurn veginn ein mannsævi á núvirði. Barn sem settist við píanó fyrsta veturinn, snemma árs 1946, gæti enn verið á meðal okkar í dag —Akureyringur á níræðisaldri sem man fyrstu tónana sem slegnir voru.

Hugsum okkur Akureyri þann vetur. Lýðveldið var aðeins tveggja ára gamalt. Heimsstyrjöldinni var nýlokið og einhverjir hermenn á sveimi. Það var ekkert sjónvarp, ekki sími á hverju heimili, og húsin voru hituð með kolum og olíu — hitaveitan kom ekki fyrr en löngu síðar. Og til að heyra tónlist varð maður annaðhvort að spila hana sjálfur, fara á tónleika eða eiga grammófón. Tónlist var fágæti og munaður.

Inn í þennan heim var skólinn okkar settur. Í fyrstu var aðeins kennt á eitt hljóðfæri — píanó. Fyrsti skólastjórinn, Margrét Eiríksdóttir, var fædd vestur í Winnipeg og hafði numið við Royal Academy of Music í London. Þaðan kom hún með stigakerfið sem margir nota og það sem varð fyrirmynd að áfangaprófskerfinu sem við þekkjum í dag — hún var fyrst allra hér á landi til að taka það upp.

Margrét stýrði skólanum aðeins í fáein ár. Hún lét af starfi — ekki vegna þess að hún kynni það ekki, heldur vegna þess að eiginmaður hennar varð skólameistari, og á þeim tíma þótti ekki við hæfi að kona skólameistara ynni utan heimilis. Ég segi ykkur þetta ekki til að hneyksla eða dæma, heldur til að minna á hversu margt getur breyst á áttatíu árum. Þannig var heimurinn þá. Þannig er hann ekki í dag.

Nú er öldin önnur. Öll tónlist heimsins flæðir í gegnum símann í vasanum — ókeypis, endalaus, hvenær sem er. Og þá kemur það sem mér finnst fallegast: einmitt þegar svona auðvelt er að hlusta, verður enn dýrmætara að læra að skapa sjálfur. Vélin getur spilað allt fyrir þig. En hún getur ekki fundið boga renna yfir streng, andadráttinn fyrir innkomu, eða stundina þegar líkaminn hættir að hugsa og fara að syngja.

Og nú langar mig að biðja ykkur að gera dálítið með mér. Hugsið áttatíu ár fram í tímann — til ársins 2106. Við getum ekki ímyndað okkur þann heim, frekar en fólkið árið 1946 gat ímyndað sér símann ykkar. Sumt verður okkur með öllu óþekkjanlegt.

En annað breytist ekki. Það verður enn til fjörður og fjall og það munu tindra norðurljós yfir bænum okkar á veturna. Börn munu enn þurfa að æfa eina litla hreyfingu þúsund sinnum til að ná fullum tökum á henni. Það mun enn skipta öllu máli að einhver fullorðinn sjái barnið og trúi á það. Og fólk mun enn safnast saman, eins og við hér í dag, til að hlusta, vera saman og finna fyrir hverju öðru.

Einhver ungur Akureyringur situr kannski árið 2106 þar sem þið sitjið núna og horfir til okkar líkt og við horfum til þeirra sem voru hér árið 1946. Vonandi getur hann þá sagt: þau gættu þess sem máli skipti. Þau héldu áfram að kenna börnunum sínum að syngja.

Til hamingju með áttatíu árin.

Og þá ætlum við að fá tónlist. Gjörið þið svo vel.

Helga Björg Kjartansdóttir flytur Christmas Dance úr svítu eftir Vaughn Williams

Það var útskriftarnemandinn Helga Björg Kjartansdóttir sem lék á víólu fyrir okkur Christmas Dance eftir Vaughn Williams ásamt Risto Laur.

Við höfum haft það fyrir sið síðustu árin, að öllum ólöstuðum, að heiðra nemendur á skólaslitum sem kennurum skólans þykir hafa sýnt óvenju mikinn dugnað og framfarir á síðasta árinu. Þrír nemendur hljóta í dag viðurkenningu og niðurfellingu á skólagjöldum fyrir næsta vetur. Ýmsar tilnefningar bárust frá kennurum en hópur fagstjóra valdi þrjá nemendur sem þóttu skara framúr.

Í tilnefningu fyrsta afburðanemanda ársins segir :
Ronja Sif Björk flautunemandi er skapandi og lífleg manneskja. Tónlist, leiklist og dans eiga hug hennar allan. Ronja er leiðtogi sem tekur ábyrgð og sýnir frumkvæði. Það er ekki síst fyrir hennar hvatningu og áhuga að flautusamspil TónAk lét verða af tónleikaferð til Frakklands fyrir ári síðan. Hún er mjög öflugur spilari í C-sveit og mætir á alla viðburði sveitarinnar, utandyra sem innan. Hún er yngri flautunemendum mikil fyrirmynd og hrífur aðra með sér.

Ronja Sif tók þátt í Hljómsveitarstjóra-akademíunni hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands síðastliðinn vetur sem kom sér mjög vel þegar hún tók að sér að verða tónlistarstjóri LMA. Hún útsetti heilan söngleik, Ljóska í gegn, og hélt um tónsprotann á leiksýningunum. Ronja hefur einnig verið mjög virk í ýmiskonar kammertónlist innan skólans og utan, spilað í uppsetningum hjá LMA og við ótal uppákomur og tækifæri. Hún mætir á tónleika og hvetur samnemendur sína!”

Mig langar að biðja Ronju um að koma upp til okkar og taka við viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur.


Í tilnefningu annars afburðanemanda ársins segir svo : Íris Ísafold hefur stundað námið í vetur af miklum dugnaði og alúð. Hún kláraði rytmískt miðpróf á píanó í nóvember en áður hefur hún klárað sama próf á klassískt píanó. Ásamt því hefur hún stundað hljómsveitastarf í skólanum af miklum krafti og alltaf verið örðum nemendum fyrirmynd með jákvæðu orkunni sinni. Hún mætir vel undirbúinn og er tilbúin að hjálpa öðrum nemendum og gerir það á uppbyggilegan hátt. Hún hefur auk námsins í tónlistarskólanum, sinnt fjölmörgum tónlistartengdum verkefnum í vetur og komið fram víða. Hún var til að mynda listrænn tónlistar stjórnandi í uppfærslu Leikfélags Menntaskólans á sýningunni Ljóska í gegn auk þess sem hún var hljómsveitastjóri í söngkeppni Menntaskólans. Hún spilaði með hljómsveitum og lék undir hjá Barna- og unglingakór Glerárkirkju. Í öllum þessum verkefnum var hún Tónlistarskólanum til mikils sóma og erum við ótrúlega stolt af því að hafa svona nemendur eins og Írisi hjá okkur. Íris er afburðar nemandi.

Mig langar að biðja Írisi um að koma upp til okkar og taka við viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur.

Í tilnefningu þriðja afburðanemanda ársins segir svo : Lára Rún hefur staðið sig frábærlega í öllu sem við kemur tónlistarnáminu frá upphafi og skarar fram úr bæði í bóklegu og verklegu námi. Hún er samviskusöm og setur námið í tónlistarskólanum ávallt í fyrsta sæti þrátt fyrir mikla pressu og álag úr ýmsum áttum. Það sýndi sig sannarlega því hún tók miklum framförum í ár og kom fram með glæsibrag á fjölmörgum tónleikum innan skólans – bæði í samspili og sem einleikari.

Lára er einnig frábær fulltrúi skólans útávið. Hún hefur tekið þátt í allskonar verkefnum fyrir utan skólann sem tónlistarkona og útsetjari ásamt því að sýna frumkvæði í að fá nemendur til að vinna saman.  

Nú í vor vann hún leiðarastöðu í Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem er merkilegur árangur og sérstaklega fyrir hennar unga aldur.

Síðast en ekki síst er Lára jákvæð, góð fyrirmynd samnemenda sinna og nær alltaf upp góðri stemningu í kringum sig. Hún er svo sannarlega afburðanemandi TónAk.

Mig langar að biðja Láru um að koma upp til okkar og taka við viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur.

Og þá er ekki úr vegi að fá smá tónlist. Að þessu sinni syngur útskriftarnemandinn Arndís Arndís Inga Árnadóttir lagið Wuthering Heights eftir Kate Bush við undirleik Stefáns Ingólfssonar, Rodrigo Lopes, Hallgríms Jóhanns Ómarssonar og Risto Laur. Gjörið þið svo vel. 

Við í Tónlistarskólanum erum svo heppin að hér er starfandi sjóður sem hefur það markmið að styðja ungt og upprennandi tónlistarfólk sem er á leið í framhaldsnám. Þorgerðarsjóður hefur verið starfandi við skólann okkar í áratugi og var stofnaður í minningu Þorgerðar S. Eiríksdóttur sem lést af slysförum þegar hún var nýkomin út í nám sjálf. Sjóðurinn hefur styrkt ýmsa unga listamenn í upphafi ferils þeirra og ég veit að framlagið sem úr honum er veitt hefur verið ómetanlegt fyrir marga, ekki einungis fjárhagslega heldur einnig sem hvatning til þess að hafa hugrekki til að láta draumana rætast og leggja út í vegferð sem er stórkostlegt ævintýri fyrir unga manneskju. Þorgerðarsjóður er svo heppinn að eiga traustan bakhjarl í Norðurorku sem gerði þriggja ára samning um stuðning við sjóðinn sem gerir okkur kleift að styðja við bakið á ungu ástríðufólki. Það er ómetanlegt að eiga góða vini og eiga þau þökk fyrir það. En nú langar mig að bjóða Reyni Eiríkssyni, fulltrúa fjölskyldu Þorgerðar, til að koma og segja nokkur orð.

[Reynir flutti nokkur orð og veitti styrki en að þessu sinni voru það Helga Björg Kjartansdóttir og Tumi Hrannar Pálmason sem hlutu styrk úr Þorgerðarsjóði]

Arndís flytur lagið „Fljúgandi"

Við þökkum Arndísi Ingu aftur fyrir en í þetta sinn flutti hún okkur eigin lag og texta sem nefnist „Fljúgandi“.

Áður en við afhendum prófskírteinin í ár þá langar mig að taka smá tíma í að kveðja tvo einstaka starfsmenn sem láta af störfum hjá okkur í haust. Það eru þau Daníel Þorsteinsson sem hefur í ár starfað við skólann okkar í hvorki meira né minna en 33 ár og Andrea okkar Gylfadóttur sem hefur glatt okkur með nærveru sinni síðustu árin. Það er alltaf erfitt að kveðja góða vini en það er huggun harmi gegn að vita að bæði munu þau vera óhrædd við að kíkja í heimsókn og leyfa okkur að njóta nærveru sinnar. Ég veit að ég tala fyrir hönd nemenda og kennara allra þegar ég segi að þeirra verður afar sárt saknað og mig langar að biðja þau um að koma hér upp og taka við örlitlum þakklætisvotti fyrir okkar hönd.

Það hefur sannarlega verið heiður að fá að njóta krafta þessara frábæru listamanna og mér þykir það vel við hæfi að við fáum nú að heyra smá tónlist eftir annað þeirra en það er lagið Krían eftir Daníel Þorsteinsson sem söngdeildin okkar ætlar að syngja fyrir okkur. Takk fyrir allt Daníel og Andrea og gangi ykkur allt í haginn þegar þið hverfið á braut nýrra ævintýra.

Þá er komið að því að afhenda prófskírteinin. Við munum afhenda áfangaprófskírteini hér á sviðinu en önnur prófskírteini og umsagnir eru í höndum kennara sem munu afhenda þau eftir athöfnina hér fyrir utan salinn. Okkur langar að biðja nemendur um að koma hér upp á svið, taka við skírteinunum sínum og stilla sér upp á sviðinu fyrir myndatöku áður en þeir fara niður aftur.

Grunnpróf

Í vetur tóku 28 nemendur Grunnpróf á hljóðfæri eða söng og af þeim eru 22 búnir að klára tónfræðihlutann líka.
3 voru áður búnir að taka grunnpróf á hljóðfæri og luku grunntónfræði í vor svo þeir hafa nú lokið grunnáfanganum að fullu.

25 fá afhent grunnprófsskírteini nú

Grunnáfanga luku þessir að fullu :

Ada Sóley Ingimundardóttir

Aðalheiður Ósk Kristjánsdóttir

Anna Kristjana Guðbergsdóttir

Baldur Jóhann Björgvinsson

Benóní Meldal Kristjánsson

Daði Jósúa Meckl

Daniele Basini

Davíð Máni Jóhannesson

Eden Blær Hróabur

Eydís María Hilmarsdóttir

Eyrún Erla Árnadóttir

Harpa Hrafney Karlsdóttir

Hákon Geir Snorrason

Inga Steinlaug Hauksdóttir

Ísólfur Raymond Matharel

Jón Aðalsteinn Snæbjörnsson

Jón Ari Skúlason

Karólína Orradóttir

Kolbrá Kría Birgisdóttir

Marcel Úlfur Davidsson

Ruofeng Xi

Sigrún Hekla Sigmundsdóttir

Sveinbjörn Heiðar Stefánsson

Valur Matthías Valbjörnsson

Vilhelm Þór Sigurðsson

Hjartanlega til hamingju með áfangann öll sömul.

Í vetur tóku 16 nemendur Miðpróf á hljóðfæri eða söng og af þeim eru 12 búnir að klára tónfræðihlutann líka.

2 nemendur höfðu áður lokið miðprófi í hljóðfæraleik/söng og luku miðtónfræðiprófi í vor svo þeir hafa nú lokið miðáfanganum að fullu. 14 fá því afhent miðprófsskírteini nú og mig langar að biðja þau eða fulltrúa þeirra um að koma upp á svið, veita skírteinum sínum viðtöku og taka sér stöðu hér á sviðinu.

Miðáfanga luku eftirtaldir að fullu:

Arndís Inga Árnadóttir

Birkir Kári Helgason

Elísabet Ósk Jónsdóttir

Haukur Pálmason

Inga Rós Suska Hauksdóttir

Íris Ísafold Sigurbjartsdóttir

Jón Aðalsteinn Snæbjörnsson

Lára Júlía Janusardóttir

Margrét Metanet Sigurðardóttir

Steingrímur Magnússon

Torfhildur Elva F Tryggvadóttir

Valur Darri Ásgrímsson

Þórhildur Eva Helgadóttir

Helena Maria Wasowicz 

Helena hóf píanónám fimm ára gömul við Suzukideild skólans, lauk miðprófi tíu ára gömul og er þar með yngsti framhaldsnemandin í sögu skólans. Það verður að teljast einstakur árangur hjá henni og við hlökkum til að fylgjast með henni í framtíðinni.

Við óskum þessum fríða flokki innilega til hamingju með áfangann og klöppum fyrir þeim öllum.

Í vetur luku þrír nemendur Framhalds- og tónleikaprófi á hljóðfæri eða söng og

fá afhent framhaldsprófsskírteini nú og fimm nemendur útskrifast af skapandi deild. Ég vil biðja þau eða fulltrúa þeirra um að koma upp á svið, veita skírteinum sínum viðtöku og taka sér stöðu hér á sviðinu.

Framhaldsprófi luku þessar:

Arndís Inga Árnadottir

Helga Björg Kjartansdóttir

Viktoría Sól Hjaltadóttir

Úr Skapandi deild útskrifast

Guðjón Elí Ingvarsson

Hekla Sólveig Magnúsdóttir

Ívar Leó Hauksson

Mahaut Ingiríður Matharel

Jón Aðalsteinn Snæbjörnsson

Við óskum ykkur öllum til hamingju með frábæran árangur og þökkum fyrir að hafa fengið að njóta upphafsins með ykkur.

Og þá er komið að lokum hjá okkur í dag. Eins og hefðin skipar okkur þá slítum við þessu frábæra áttatíu ára afmælisári með því að standa öll á fætur og syngja saman tvö lög með hjálp söngdeildarinnar okkar. Það fyrra er skólasöngurinn okkar Tónanna Mál sem er eins og flestir vita lag eftir Daníel Þorsteinsson við ljóð Hjörleifs Hjartarsonar og það síðara er Ó blessuð vertu sumarsól sem við notum á hverju ári til að töfra fram geggjað veður á Akureyri. Við í tónlistarskólanum þökkum ykkur öllum fyrir komuna og hlökkum til að sjá ykkur öll hress og kát næsta haust á síðari hluta afmælisársins. Takk fyrir og góðar stundir.