Fara í efni

Söngvavor handhafi Íslensku menntaverðlaunanna!

Söngvavor handhafi Íslensku menntaverðlaunanna!

Verkefnið Söngvavor fékk í gærkvöldi íslensku menntaverðlaunin fyrir framúrskarandi þróunarverkefni. Söngvavor á uppruna sinn og heimahöfn í Tónskóla Sigursveins og hefur verið við lýði síðan 2010. Frá árinu 2024 hefur Tónlistarskólinn á Akureyri ásamt leikskólum í bænum og í nærsveitum verið þátttakandi í verkefninu sem lýkur með tónleikum í Hofi í apríl en gaman er að segja frá því að síðastliðið vor náði verkefnið til rúmlega 3.000 barna í 140 leikskólum og 15 tónlistarskólum víðs vegar um land.

Á hverju ári er eitt íslenskt tónskáld í forgrunni og tónverk þess sérstaklega útsett með tilliti til raddsviðs leikskólabarna og færni ungra hljóðfæraleikara. Leikskólabörnin heimsækja tónlistarskólann og æfa ásamt 10 til 16 ára nemendum sem sjá um hljóðfæraleikinn. Undirbúningur er þegar hafinn fyrir næstu tónleika sem verða þriðjudaginn 20. apríl í Hofi en þar verða flutt lög eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur.