Strengjasveit 2 í Hrísey
Strengjasveit 2 í Hrísey
Föstudaginn 8. maí fjóru félagar í Strengjasveit 2 ásamt stjórnanda sínum Ásdísi Arnardóttur út í Hrísey. Fyrsti viðkomustaður var Hríseyjarskóli en þar voru haldnir tónleikar fyrir alla nemendur grunn- og leikskóla. Fyrst var hljóðfærakynning og nemendurnir léku tóndæmi á hljóðfærin sín. Síðan lék sveitin þrjú lög; Forleikinn að óperunni Carmen eftir Bizet, Búgí í grasinu eftir Halferty og að lokum stefið úr kvikmyndinni Mission Impossible eftir Shifrin. Viðtökur voru einstaklega góðar og í lokalaginu fengum við aðstoð frá nemendum í Hríseyjarskóla sem léku á tambúrínu svona til að tryggja að takturinn yrði góður. Þá var komið að spurningum og spjalli. Stærsta hljóðfæri sveitarinnar, kontrabassinn, vakti mikla athygli og var hann viktaður og hæðarmældur á staðnum og reyndist vera 11,2 kg og 199,5 cm á hæð. Einnig var kannað hversu margir nemendur kæmust í bassapokann og voru það þrír nemendur sem gátu lagt sig saman í hann. Þetta var nú skemmtilegt og frábærir krakkar í Hríseyjarskóla sem og í Strengjasveit 2.
Eftir þetta var borðað nesti og leikið. Svo opnaði verslunin í hádeginu og þá kíktum við þangað. Veðrið lék við okkur og varla bærðist hár á höfði þennan dag í Hrísey, perlu Eyjafjarðar.





