Þér er boðið á tónleika UPPTAKTSINS sunnudaginn 19. apríl kl. 17
Þér er boðið á tónleika UPPTAKTSINS sunnudaginn 19. apríl kl. 17
Ungir semja – fullorðnir flytja
Þér er boðið á tónleika UPPTAKTSINS sunnudaginn 19. apríl kl. 17 í Hamraborg í Hofi -
Uppskeruhátíð Upptaktsins, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna á Norðurlandi eystra, verður haldin sunnudaginn 19. apríl kl. 17. Þar verða sjö glæný lög eftir jafnmörg ungmenni á aldrinum 10-12 ára frumflutt af atvinnuhljóðfæraleikum á sviði Hamraborgar.
Það voru sjö ungmenni sem komust áfram að þessu sinni í Upptaktinn. Þau sendu inn hugmynd að lagi sem þau hafa unnið í vinnusmiðjum með Gretu Salóme, tónlistarstjóra Upptaktsins og fiðluleikara. Afrakstur vinnu þeirra má sjá og heyra á tónleikunum, sem eru hluti af Barnamenningarhátiðinni á Akureyri.
Ungtónskáldin sjö eru:
Freyja Rán Kristínardóttir - Snjóstormur, 10 ára úr Glerárskóla
Guðný Lilja B. Ásgeirsdóttir – Draumar, 10 ára úr Lundarskóla
Hákon Geir Snorrason – Saman, 12 ára úr Lundarskóla.
Ólöf Birna Kristjánsdóttir, 11 ára úr Síðuskóla
Ólöf Braga Ívarsdóttir – Tímavélin, 10 ára úr Giljaskóla
Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske, 12 ára úr Brekkuskóla
Þorvaldur Adam Ásgeirsson – Blíða, 10 ára úr Lundarskóla
Hljómsveit Upptaktsins skipar tónlistarfólkið:
Emil Þorri Emilsson – slagverk, Eydís S. Úlfarsdóttir - víóla, Eyþór Ingi Jónsson – flygill, Greta Salóme – fiðla og söngur, Kristján Edelstein – gítar, Stefán Ingólfsson - bassi og Ágúst Þór Brynjarsson - söngur.
Útsetning verkanna fyrir hljómsveit: Greta Salóme Stefánsdóttir
Tónlistarstjóri: Greta Salóme Stefánsdóttir
Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE
Hér má sjá fésbókarviðburðinn https://fb.me/e/3AvU5WNP2 ef þið viljið festa viðburðinn rækilega inná fésbókina ykkar 🙂
Hlakka til að sjá ykkur!
Bestu kveðjur,
Kristín Sóley, verkefnastjóri Upptaktsins á Norðurlandi eystra.