Fara í efni

Þorgerðartónleikar í Hofi 28. mars kl. 20:00

Þorgerðartónleikar í Hofi 28. mars kl. 20:00

Mánudaginn 28. mars 2022 kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur.

Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikarnir helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.

Á tónleikunum koma fram nemendur á efri stigum og flytja fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá.

Aðgangur er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum.