Fara í efni

Þrjár viðurkenningar til TA á Nótunni.

Þrjár viðurkenningar til TA á Nótunni.

Svæðistónleikar Nótunnar fyrir norðausturland fóru fram föstudaginn 9. febrúar síðastliðinn,  og stóðu fulltrúar okkar sig með mikilli prýði.

3 atriði frá TA fengu viðurkenningu: Emilía Ingibjörg Guðjónsdóttir sellóleikari fékk viðurkenningu fyrir frumlegt/frumsamið atriði í grunnstigi en hún lék lagið "Old Movie" sem hún samdi sjálf. Flautukórinn hennar Petreu flautukennara fékk líka viðurkenningu fyrir flutning sinn á "Hermikrákunni" eftir G.E. Holmes en hann keppti í opnum flokki og síðast en ekki síst fékk Eysteinn Ísidór Ólafsson píanóleikari viðurkenningu fyrir einleik í framhaldsstigi en hann lék Hugleiðingu um íslenskt þjóðlag eftir Tryggva M. Baldvinsson.

Eysteinn og flautukórinn munu koma fram í Eldborgarsal Hörpu þann 4. mars næstkomandi.