Fara í efni

Tónleikar hjá ungu hljómsveitinni Cohortis

Tónleikar hjá ungu hljómsveitinni Cohortis

Unga tónlistarkonan Sigrún María sem er ný búin að gefa út sitt fyrsta lag, (Dancing on) The Edge of Reality, Stígur nú á svið með hljómsveitinni sinni Cohortis miðvikudaginn þann 30. Apríl þar sem þau munu flytja ný, frumsamin lög ásamt nokkrum töku lögum. Hljómsveitin samanstendur af Sigrúnu Maríu sem syngur og spilar á gítar, Heklu Sólveigu á hljómborði, Helgu Björg á bassa, Valdimar á gítar og Elíasi á trommum. Tónleikarnir verða haldnir í Hlöðunni, Litla-Garði á Akureyri, þeir byrja klukkan 20:00 og kostar aðeins 3000 kr. inn.

Hljómsveitin hefur komið fram á ýmsum viðburðum yfir síðastliðnu þrjú árin eins og til dæmis tónlistarkeppni Menntaskólans á Akureyri, Viðarstauk, þar sem þau lentu í þriðja sæti. Þau gætu ekki verið spenntari yfir því að halda loksins sína eigin tónleika þar sem þau geta flutt frumsömdu lögin fyrir framan fullan sal af fólki. Það er öruggt að þetta verður frábært og skemmtilegt kvöld og vonast hljómsveitin eftir því að sjá sem flesta og þá líka ný andlit sem hafa áhuga á því að kynnast nýrri tónlist eftir ungt íslenskt tónlistarfólk.