Fara í efni

Tónlistarfélag Akureyrar 75 ára

Tónlistarfélag Akureyrar 75 ára

Tónlistarfélag Akureyrar, sem er einn af stofnendum Tónlistarskólans á Akureyri, heldur upp á 75 ára afmæli sitt með glæsilegri tónlistarveislu í Hofi dagana 22.  - 28. janúar.

Átta tónleikar á einni viku; kórahátíð, einleikur, einsöngur, kammer-, barna-, rokk- og jazzfusiontónleikar. Miðaverð 2500 krónur, 20% afsláttur fyrir félagsmenn í Tónlistarfélagi Akureyrar. Styrktaraðilar eru Akureyrarbær, Menningarfélag Akureyrar, Kea og Norðurorka.

22. janúar kl. 20 Kórahátíð, Kvennakór Akureyrar, stjórnandi Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, Karlakór Eyjafjarðar, stjórnandi Guðlaugur Viktorsson, Kór aldraðra í fínu formi, sjórnandi Petra Björk Pálsdóttir og Kvennakórinn Emblur, stjórnandi Roar Kvam. Meðleikarar á píanó, Helga Kvam og Valmar Väljaots.

23. janúar kl. 12 Einleikur á píanó, Alexander Smári Kristjánsson Edelstein leikur verk eftir Bach, Brahms, Chopin, Mozart, Rachmaninoff og sjálfan sig.

24. janúar kl. 12 Brot af því besta úr heimi söngleikjanna, Jónína Björt Gunnarsdóttir söngur og Daníel Þorsteinsson píanó flytja lög eftir m.a. Rodgers & Hammerstein, Stephen Sondheim og Jason Robert Brown.

25. janúar kl. 20 Heitur fimmtudagur í Naustinu í Hofi. Kristján Edelstein gítar, Stefán Ingólfsson bassi og Halldór G. Hauksson trommur flytja lög úr safni sínu auk laga eftir Kristján Edelstein.

26. janúar kl. 12 Daniele Basini flytur suður-ameríska gítartónlist eftir Baden Powell, Piazzolla, Luiz Bonfà, Sanchez, Bogdanović og sjálfan sig.

26. janúar kl. 20 Rokktónleikar í Nausti í Hofi. Hljómsveitirnar Gringlombian, Röskun og Volta flytja eigin tónlist.

27. janúar kl. 14 Blásarakvintettinn NorðAustan 5-6 flytur hið sívinsæla tónlistarævintýri um Pétur og Úlfinn eftir Prokofiev. Flytjendur eru Hildur Þórðardóttir flauta, Gillian Haworth óbó, Berglind Halldórsdóttir klarinett, Dagbjört Ingólfsdóttir fagott og Ella Vala Ármannsdóttir horn. Sögumaður er Ívar Helgason.

28. janúar kl. 14 Píanókvartettinn Fífill og Sóleyjar er skipaður Láru Sóleyju Jóhannsdóttur á fiðlu, Herdísi Önnu Jónsdóttur víólu, Ásdísi Arnardóttur selló og Daníel Þorsteinssyni píanó. Á tónleikunum flytja þau Píanókvartett í g moll KV 478 eftir Mozart og Kvartett eftir Alfred Schnittke og Hægan þátt úr Kvartett opus 47 eftir Robert Schumann.