Tónlistarskólinn 80 ára !
Tónlistarskólinn 80 ára !
Laugardaginn 7. febrúar höldum við upp á 80 ára afmæli og af því tilefni opnum við skólann okkar fyrir bæjarbúa. Smiðjur, tónleikar og kaka ! Endilega kíkið við og fagnið með okkur.
Við byrjum á að hafa opnar smiðjur á milli 11 og 12 og einnig verður hægt að ganga um skólarýmið og skoða. Mögulega hittast fyrir kennarar og annað starfsfólk á göngunum sem eru meira en til í að spjalla við ykkur ef einhverjar spurningar vakna.
SMIÐJUR 11-12
Kl. 11:00 Electrosmiðja - stofa 357, 3. hæð
Lítið við í stofu 357! skoðum allskonar græjur, snúum tökkum og búum til skrítin hljóð saman
Kl. 11:00 Lita & hlusta - bókasafn, 3. hæð
Þátttakendur hlusta á klassískt tónverk ca. 25 min. langt hljómsveitarverk - mögulega konsert og lita mynd eða teikna undir áhrifum tónlistarinnar. Hægt að teikna / lita eftir eigin höfði eða lita t.d. fyrirliggjandi myndir. ATH ! takmarkað pláss, mætið tímanlega.
Kl. 11:00 Söngdansar - Dynheimum, 2. hæð
Söngdansar er fyrir þau sem finnst gaman að syngja og dansa lög á borð við Foli foli fótalipri, Á Sprengisandi, Fiðrildadans frá Bólivíu og fleira.
Kl. 11:00 Trommuhringur - Black box, jarðhæð
Trommuhringur er hefð sem tengist alheimstónlist og byggir á leik með rytma og almennri þátttöku. Helsti kostur er að allir geta tekið þátt og notið þrátt fyrir ólíka getu. Trommuhringir byggja á að fólk komi saman og spili.
Kl. 11:30 Fiðlukynning - Lundi, 2. hæð
Fiðlan er skoðuð með eyrum, fingrum og augum. Hentar börnum frá eins árs aldri og upp úr
Kl. 11:30 Söngsalur - Hömrum, jarðhæð
Fjöldasöngur, við komum saman og syngjum, söngtextar á skjá
Formleg setning verður á milli 12 og 13 þar sem boðið verður upp á tónlistaratriði og ræður í bland og auðvitað verður líka kaka !
SETNING 12:15 -12:45
Ræður frá nemendum, Ronja Sif talar fyrir hönd klassískrar deildar og Eden Blær fyrir hönd rytmískrar deildar. Suzuki kríli og suzuki fiðlur, barna og unglingasöndeild og flautusamspil sjá um skemmtiatriði á setningu og svo er auðvitað kaka !
Frá 13-15 verða síðan stuttir tónleikar í þrem mismunandi rýmum. Sjá má dagskrána hér fyrir neðan en fókusinn verður að sjálfsögðu á nemendur.
TÓNLEIKAR 13-15
13:00 Nausti Blásarasveitir
13:20 Hömrum Klassísk söngdeild
13:40 Black box Rytmískar hljómsveitir
14:00 Nausti Strengjasveitir og víólu og sellóhópur
14:20 Hömrum Píanó og gítardeildir
14:40 Black box Rytmísk söngdeild
Komið og fagnið 80 ára afmæli með okkur
ÓKEYPIS AÐGANGUR OG ÖLL VELKOMIN !