Fara í efni

ÚTSKRIFTARTÓNLEIKAR LHÍ - ERLA MIST MAGNÚSDÓTTIR

ÚTSKRIFTARTÓNLEIKAR LHÍ - ERLA MIST MAGNÚSDÓTTIR

Mánudaginn 16. janúar 2023 kl 17:00 heldur Erla Mist Magnúsdóttir útskriftartónleika sína úr rytmísku söng- og hljóðfærakennaranámi við Listaháskóla Íslands.
Tónleikarnir fara fram í Hömrum í Hofi á Akureyri í samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri.
Efnisskrá tónleikanna samanstendur af vel völdum lögum úr ýmsum áttum; allt frá dægurlögum og yfir í djass.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
Á tónleikunum koma fram:
Erla Mist Magnúsdóttir - söngur
Hallgrímur Jónas Ómarsson - gítar
Rodrigo Lopes - trommur
Tómas Leó Halldórsson - bassi
Þorvaldur Örn Davíðsson - píanó
Aron Freyr Ívarsson - gestasöngvari
//
Erla Mist hóf tónlistarnám sitt á því að læra á klassískt píanó á aldrinum 8-15 ára að mestum hluta við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Þegar hún var 17 ára hóf hún nám í rytmískum söng við Tónlistarskólann á Akureyri. Þaðan lá leiðin í Tónlistarskóla FÍH og MÍT þaðan sem Erla Mist lauk framhaldsprófi vorið 2019. Haustið 2019 hóf hún síðan nám við LHÍ. Haustinu 2021 varði Erla Mist í skiptinámi við Metropolia: University of Applied Sciences í Helsinki, Finnlandi. Samhliða því að ljúka Bakkalár námi sínu hefur Erla Mist sinnt kennslu við Tónlistarskóla Eyjafjarðar og Tónlistarskólann á Akureyri síðustu mánuði.