Vortónar á Vopnafirði
Vortónar á Vopnafirði
Laugardaginn 9. maí kl 15:00 heldur flautusamspil Tónlistarskólans á Akureyri tónleika í Vopnafjarðarkirkju.
Tónleikarnir eru að frumkvæði Katrínar Karlinnu Sigmundsdóttur og móður hennar Hörpu Sveinsdóttur en þær tengjast Vopnafirði og kirkjunni sterkum böndum en þar söng amma Katrínar og móðir Hörpu, Steindóra Sigurðardóttir, áratugum saman á kirkjuloftinu og Harpa á unglingsárum sínum.
Katrín Karlinna hefur leikið í flautusamspilinu í 5 ár og langar að bjóða flautufélögum sínum til Vopnafjarðar að spila með sér.
Nemendurnir í flautusamspilinu eru á aldrinum 11-21 árs.
Eldri stúlkurnar hafa spilað saman í fimm ár og koma reglulega fram á tónleikum Tónlistarskólans á Akureyri, heimsækja öldrunarheimili bæjarins með tónleikahaldi og leika við ýmis tækifæri í Akureyrarkirkju.
Þær hafa komið fram á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu, leikið á Barnamenningarhátíðinni á Akureyri og á Barnamenningarhátíðinni í Reykjavík.
Vorið 2025 fóru þær í eftirminnilega tónleikaferð til Frakklands og héldu tónleika í Normandí og París.
Tvær yngri stúlkurnar eru að stíga sín fyrstu spor í flautusamspilinu í vetur.
Efnisskrá tónleikanna inniheldur þekkt klassísk verk auk íslenskra verka fyrir allt að fimm flautur, eftir tónskáldin Báru Grímsdóttur, Þorkel Sigurbjörnsson, Pachelbel, Tchaikovsky og Grieg.
Tónleikarnir verða um fjörtíu mínútna langir án hlés.
Enginn aðgangseyrir.

Stjórnandi er Petrea Óskarsdóttir