Fara í efni

Álfadans (Nú er glatt í hverjum hól)

Til baka í söngbók

Álfadans (Nú er glatt í hverjum hól)

Nú er glatt í hverjum hól,
hátt nú allir kveði.
hinstu nótt um heilög jól,
höldum álfagleði.

Fagurt er rökkrið,
við ramman vættasöng
syngjum dátt og dönsum því nóttin er svo löng.
Syngjum dátt og dönsum því nóttin er svo löng.

Kátir ljúflings kveðum lag,
kveðum draumbót snjalla,
kveðum glaðir gýgjarslag,
glatt er nú á hjalla.

Fagurt er rökkrið,
við ramman vættasöng
syngjum dátt og dönsum því nóttin er svo löng.
Syngjum dátt og dönsum því nóttin er svo löng.

Lag: Sæmundur Eyjólfsson
Texti: Helgi Helgason