Fara í efni

Álfareiðin

Til baka í söngbók

Álfareiðin

Stóð ég úti í tunglsljósi, stóð ég út við skóg,
stórir komu skarar, af álfum var þar nóg.
Blésu þeir á sönglúðra og bar þá að mér fljótt.
Bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt.
Bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt.

Hleyptu þeir á fannhvítum hestum yfir grund,
hornin jóa gullroðnu blika við lund
eins og þegar álftir af ísagrárri spöng.
Fljúga suður heiði með fjaðraþyt og söng.
Fljúga suður heiði með fjaðraþyt og söng.

Heilsaði hún mér drottningin og hló að mér um leið,
hló að mér og hleypti hestinum á skeið.
Var það út af ástinni ungu, sem mér ber?
Eða var það feigðin, sem kallar að mér?
eða var það feigðin, sem kallar að mér?

Lag: Erlent lag
Texti: Jónas Hallgrímsson