Fara í efni

Bjart er yfir Betlehem

Til baka í söngbók

Bjart er yfir Betlehem

Bjart er yfir Betlehem, blikar jólastjarna
Stjarnan mín og stjarnan þín, stjarna allra barna.
Var hún áður vitringum vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var, barnið ljúfa, kæra.

 

Víða höfðu vitringar vegi kannað hljóðir
Fundið sínum ferðum á fjölda margar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem birtan undur skæra.
Barn í jötu borið var, barnið ljúfa, kæra.

 

Barni gjafir báru þeir. blítt þá englar sungu.
Lausnaranum lýstu þeir, lofgjörð Drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem, blikar jólastjarna.
stjarnan mín og stjarnan þín, stjarna allra, Barna.

Lag: Erlent þjóðlag
Texti: Ingólfur Jónsson