Fara í efni

Lagið um það sem er bannað

Til baka í söngbók

Lagið um það sem er bannað

Lagið um það sem er bannað 

 

Það má ekki pissa bakvið hurð 
og ekki henda grjóti oní skurð. 
Ekki fara í bæinn 
og kaupa popp og tyggjó, 
ekki nota skrúfjárn fyrir sleikjó. 

Það má ekki vaða út í sjó 
og ekki fylla húfuna af snjó. 
Ekki tína blómin, 
sem eru úti' í beði, 
ekki segja ráddi, heldur réði. 

Þetta fullorðna fólk er svo skrítið,  
það er alltaf að skamma mann, 
þó maður geri ekki neitt. 
Það er alltaf að skamma mann. 

Það má ekki skoða lítinn kall 
og ekki gefa ketti drullumall. 
Ekki skjóta pabba 
með byssunni frá ömmu 
og ekki tína orma handa mömmu. 

Það má ekki hjóla útí búð 
og ekki gefa litla bróður snúð. 
Ekki fara að hlæja 
þó einhver sé að detta, 
ekki gera hitt og ekki þetta. 

Þetta fullorðna fólk er svo skrítið,  
það er alltaf að skamma mann, 
þó maður geri ekki neitt. 
Það er alltaf að skamma mann. 

Lag og texti: Sveinbjörn I. Baldvinsson