Fara í efni

Söngur um lífið

Til baka í söngbók

Söngur um lífið

Í öðrum hvorum söng sem nú er sunginn er tómt svartsýnisraus

Og textaskáldin sýnast mörg sorgum þrungin já, langt upp fyrir haus

En ég vil heldur syngja’ um björtu hliðarnar á ævinnar braut

Ég er ánægður ef ég á söng í hjartanu og saltkorn í minn graut

 

           Já, syngjum um lífið

           Og lofum það líka

           Þó að peningana skorti getur hamingjan oft gert menn

           æði ríka

           Það er nógur tími til að hugsa’ um dauðann eftir dauðann

           njóttu lífsins meðan kostur er.

           Ég syng bara’ um lífið

           Og syngdu með mér.

 

Þó að jarðskjálftar, eldgos, frost og fárviðri sé fréttaefni

Þá er fegurðin og ástin já og sólskinið hið rétta efni

Sem er þess virði að það sé leitað uppi og notið sé vel

Því að bjaratsýni, bros og gleði’ í sálinni er best, það ég tel

 

           Já, syngjum um lífið

           Og lofum það líka

           Þó að peningana skorti getur hamingjan oft gert menn

            æði ríka

           Það er nógur tími til að hugsa’ um dauðann eftir dauðann

           njóttu lífsins meðan kostur er.

            Ég syng bara’ um lífið

           Og syngdu með mér.

 

Ef leiðist þér að hlusta’ á nöldur um fátækt og púl

Má alltaf grafa upp lukkusöngva sungna af Rúnari Júl.

Og ef þú vilt fá skammt að ánægju’ og gleði og hamingju von

Þá ættir þú að hlusta á texta eftir hann Þorstein Eggertsson

 

           Hann semur um lífið

            Og lofar það líka

          Þó að peningana skorti getur hamingjan oft gert menn

           æði ríka

           Það er nógur tími til að hugsa’ um dauðann eftir dauðann

           njóttu lífsins meðan kostur er.

            Ég syng bara’ um lífið

           Og syngdu með mér.

           Já, syngjum um lífið

           Og lofum það líka

           

           Þó að peningana skorti getur hamingjan oft gert menn

           æði ríka

           Það er nógur tími til að hugsa’ um dauðann eftir dauðann

           njóttu lífsins meðan kostur er.

            Ég syng bara’ um lífið

           Og syngdu með mér.

Lag: Beudleaux Bryant
Texti: Þorsteinn Eggertsson