Fara í efni

Syngjandi hér, syngjandi þar

Til baka í söngbók

Syngjandi hér, syngjandi þar

(viðlag)

Syngjandi hér, syngjandi þar, 
syngjandi geng ég alls staðar. 
Sí og æ – æ og sí, 
aldrei fæ ég nóg af því. 

Einu sinni ég átti kú, 
einu sinni ég átti kú. 
Hún sagði’ ekki mö, heldur bú bú bú, 
já býsna skrýtin var kýrin sú. 

viðlag 

Einu sinni átti ég geit, 
einu sinni átti ég geit. 
Hún fékkst aldrei til að fara á beit 
því feimin var hún og undirleit. 

viðlag 

Ég átti hrút og hann var grár, 
ég átti hrút og hann var grár. 
Svo skipti’ hann um lit og eftir ár 
hann orðinn var næstum því fjólublár. 

viðlag 

Ég átti líka hund sem oft svaf fast, 
ég átti líka hund sem oft svaf fast. 
Og þegar rigndi og það var hvasst, 
þá fékk hann alltaf gigtarkast. 

viðlag 

Ég átti klár sem Kappi hét, 
ég átti klár sem Kappi hét. 
Og ef ég hnakk minn á hann lét, 
hann útaf lagðist og stundi’ og grét. 

viðlag 

Ég átti fugl sem í búri bjó, 
ég átti fugl sem í búri bjó. 
Hann aldrei söng og aldrei þó 
að undir væri leikið á píanó. 

viðlag 

Ég átti kött sem var klókur og vís, 
ég átti kött sem var klókur og vís. 
Hann aldrei nennti að eltast við mýs 
en át bara kökur og rjómaís. 

viðlag 

Lag: erlent lag
Texti: Jónas Árnason