Fara í efni

Vorvindar glaðir

Til baka í söngbók

Vorvindar glaðir

Vorvindar glaðir,
glettnir og hraðir
geysast um löndin rétt
eins og börn.

Lækirnir skoppa,
hjala og hoppa,
hvíld er þeim nóg
í sæ eða tjörn.

Hjartað mitt litla
hlustaðu á;
hóar nú smalinn
brúninni frá.

Fossbúinn kveður,
kætir og gleður.
Frjálst er í fjallasal.

Lag: Sænskt þjóðlag
Texti: Helgi Valtýsson